Veglokun aftur í kvöld í norðurátt á Vesturlandsvegi
Vegagerðin mun í kvöld, mánudaginn 1. júní, malbika tvo kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og Kollafjörð. Framkvæmdirnar hefjast klukkan 19:00 og standa til klukkan 07:00 á þriðjudagsmorgun, 2. júní. Um er að ræða kafla sem eru 670 metrar og 1490
Vegagerðin mun í kvöld, mánudaginn 1. júní, malbika tvo kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og Kollafjörð. Framkvæmdirnar hefjast klukkan 19:00 og standa til klukkan 07:00 á þriðjudagsmorgun, 2. júní.
Um er að ræða kafla sem eru 670 metrar og 1490 metrar að lengd. Umferðastýring verður á svæðinu frá klukkan 19:00 til 21:00. Eftir klukkan 21:00 verður Vesturlandsvegi lokað í norðurátt og verður hjáleið um Kjósarskarð. Ökumenn í suðurátt munu aka meðfram framkvæmdarsvæði. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát á vinnusvæðunum, þar sem menn og tæki verða nálægt akstursbrautum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn