Vegagerðin varar við innviðafélagi: Óljós ábyrgð og tafir á stórum verkefnum

Ljósmynd: Oliver Wagenblatt / Pexels
Ljósmynd: Oliver Wagenblatt / Pexels

Vegagerðin telur að stofnun sérstaks innviðafélags geti skapað óljósa ábyrgð í vegamálum og haft neikvæð áhrif á tíma, kostnað og gæði samgönguframkvæmda. Þetta kemur fram í minnisblaði stofnunarinnar sem lagt hefur verið fram í fjárlaganefnd Alþingis, þar sem fjallað er um áhrif félagsins á starfsemi Vegagerðarinnar.

Innviðaráðuneytið óskaði eftir umsögn Vegagerðarinnar um áform um innviðafélag, sem ætlað er að flýta uppbyggingu og endurnýjun stofnvegakerfisins. Frumvarp um félagið er nú til meðferðar á Alþingi.

Áhrif á stórverkefni og stjórnsýslu

Í minnisblaðinu kemur fram að ef verkefni eins og Ölfusárbrú, Fljótagöng og Sundabraut verði færð frá Vegagerðinni til nýs félags, megi reikna með að þau tefjist um að minnsta kosti tvö ár. Slíkar tafir myndu ganga gegn yfirlýstum tilgangi með stofnun félagsins, sem er að flýta framkvæmdum.

Vegagerðin gerir einnig athugasemdir við að fjármálaráðherra fari með yfirstjórn félagsins. Stofnunin bendir á að slíkt gangi þvert á fyrirkomulag í Noregi og Danmörku, þar sem samgönguráðherra fer með vald yfir sambærilegum félögum sem koma að samgönguframkvæmdum. Að mati Vegagerðarinnar væri með þessu verið að tvískipta þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar innan stofnunarinnar og byggja upp nýja stjórnsýslu, ábyrgðarkeðjur og lagaumhverfi, með tilheyrandi kostnaði, áhættu og óvissu.

Sjá nánar: mbl.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →