Vegagerðin skoðar mögulegar staðsetningar á nýrri brú yfir Lagarfljót
Vegagerðin hefur hafið rannsóknir á mögulegum legustöðum nýrrar brúar yfir Lagarfljót milli Egilsstaða og Fellabæjar. Tvær helstu staðsetningar brúarinnar eru til skoðunar, auk fjölmargra veglína.
Vegagerðin hefur hafið rannsóknir á þessu ári til að ákvarða legu nýrrar brúar yfir Lagarfljót milli Egilsstaða og Fellabæjar. Tvær mismunandi staðsetningar brúarinnar eru til skoðunar í fyrstu, auk fjölmargra mögulegra veglína á báðum hliðum fljótsins. Þetta kemur fram í gögnum sem Vegagerðin hefur sent sveitarfélaginu Múlaþingi og landeigendum á svæðinu.
Verkefnið felur í sér nýjan veg frá Selhöfða við Urriðavatn að vegamótum við Fagradalsbraut á Egilsstöðum, þar sem nýja brúin er hluti af heildarlausninni. Fyrri staðsetning brúarinnar er rétt fyrir innan núverandi brú, eða innan við Helgafell í Fellabæ. Seinni kosturinn er að brúin komi að landi rétt innan við þar sem hús ferðaþjónustunnar á Skipalæk eru. Á Egilsstaðamegin eru tvær veglínur til skoðunar. Önnur felur í sér að farið er niður í átt að Egilsstaðabýlinu og frá því út með fljótsbakkanum að brúarstæðinu. Hin veglínan fylgir núverandi vegi yfir Egilsstaðanes þar sem beygt er fyrir neðan Menntaskólann. Báðar þessar línur fara inn fyrir endann á flugbrautinni á Egilsstaðaflugvelli. Fellamegin eru fjórar veglínur til skoðunar. Helsta valið er hvort fylgja eigi núverandi vegi þar til komið er inn í Fellabæ og þar beygt í áttina að brúnni, eða hvort vegurinn fari frá innri enda vatnsins inn fyrir höfðana. Eftir það fer það eftir staðsetningu brúarinnar hvort vegurinn beygi þaðan niður meðfram Vínlandi eða fari inn fyrir túnin á Skipalæk.
Vegagerðin leggur áherslu á að engar endanlegar ákvarðanir hafi verið teknar um staðsetningar. Fyrirhugaðar rannsóknir á svæðinu á þessu ári fela í sér dýptarmælingar á fljótinu og yfirferð svæðisins með jarðsjá. Í kjölfar þeirra koma síðan borrannsóknir á völdum stöðum. Þessi vinna stendur fram í nóvember. Sjálfur vegurinn og brúin eru ekki á samgönguáætlun fyrr en á árunum 2036-2040.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt
Heimild: Austurfrétt