Vegagerðin býður út gerð hringtorgs á Akrafjallsvegi við Akranes
Vegagerðin býður út gerð hringtorgs á Akrafjallsvegi við Akranes, með skilafresti 14. júlí 2026.
Vegagerðin býður út gerð hringtorgs á Akrafjallsvegi (51), á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi um Lækjarskóga. Útboðsnúmer er 26-002. Útboðsgögn verða afhent 25. júní 2026 kl. 00:00. Skilafrestur er 14. júlí 2026 kl. 14:00 og opnun tilboða fer fram sama dag kl. 14:15.
Verkið felur í sér gerð hringtorgs, staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg, stígagerð að undirgöngum, lagningu vatns- og hitaveitulagna og annarra fjarskiptalagna og rafstrengja ásamt færslu núverandi háspennustrengja. Innifalið í verkinu er gerð fyllinga og fergingar, útlögn styrktar- og burðarlags, malbikun, niðurlögn ræsa og uppsetning vegriða, lýsingarbúnaðar, skilta og vegbúnaðar, yfirborðsmerkingar, færsla háspennustrengja og lagning vatns- og hitaveitulagna og annarra strenglagna.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is