Vatnsmikil og heit hola á Bakka

Veitur hafa lokið borun á nýrri jarðhitaborholu á Bakka í Ölfusi, sem gefur frá sér um 95°C heitt vatn. Holan mun, þegar hún verður tekin í notkun, auka rekstraröryggi og styðja við vaxandi byggð á svæðinu.

Vatnsmikil og heit hola á Bakka
Mynd: flickr / CC BY-SA / Pexels

Veitur hafa lokið við borun á nýrri jarðhitaborholu, HJ-02, á Bakka í Ölfusi. Fyrstu niðurstöður benda til þess að holan sé gjöful og gefi frá sér um 95°C heitt vatn. Á Bakka eru fyrir tvær borholur sem sjá meðal annars Þorlákshöfn fyrir heitu vatni.

Nú taka við frekari rannsóknir á holunni og eiginleikum hennar, þar á meðal efnasamsetningu vatnsins sem er kísilríkt. Áður en hægt verður að virkja holuna til húshitunar á svæðinu þarf að ljúka þessum rannsóknum og gera áætlanir um tengingar við dreifikerfið. Því er ekki hægt að segja með vissu hvenær hún verður tilbúin til nýtingar.

Borholan var unnin af North Tech Drilling (NTD) fyrir Veitur. Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) ásamt COWI á Íslandi sáu um tillögu að staðsetningu og hönnun holunnar. Þegar hún verður tekin í notkun er gert ráð fyrir að hún auki rekstraröryggi og styðji við vaxandi byggð á veitusvæðinu.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska

Heimild: Sunnlenska

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →