Varaseðlabankastjóri varar við skarpri aðlögun

Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, varar við aukinni hættu á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum auki þessa hættu. Raunveruleg fjármögnunarskilyrði heimila hafa versnað umfram stýrivaxtahækkanir

Varaseðlabankastjóri varar við skarpri aðlögun
Mynd: Greece-China News / Pexels

Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, varar við aukinni hættu á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum auki þessa hættu. Raunveruleg fjármögnunarskilyrði heimila hafa versnað umfram stýrivaxtahækkanir vegna mikillar hækkunar verðtryggðra markaðsvaxta frá því í vor.

Fjármálastöðugleikanefnd vekur athygli á vaxandi skuldum í byggingargeiranum samhliða því að lengri tíma tekur að selja eignir. Nefndin beinir því til lánveitenda að þeir þurfi að „gæta að aukinni áhættu í geiranum.“

Landsbankinn er nú með um helming allra útistandandi lána stóru bankanna til verktakafyrirtækja, eftir verulegan lánavöxt á liðnu ári til byggingageirans. Greinendur hafa varað við því að útlánasafn bankanna til geirans eigi eftir að „súrna“ þar sem meðalsölutími nýrra íbúða hefur aldrei mælst lengri og aðgengi að lánsfé hefur þrengt.

Að mati sérfræðings gæti þurft um sex prósenta nafnverðslækkun á næstu tveimur árum til að leiðrétta ójafnvægi á fasteignamarkaði. Greinendur ACRO telja að byggingarverktakar og lánveitendur ættu „að spenna beltin“ þar sem framundan er verð aðlögun að greiðslugetu kaupenda, sem gæti komið fram í allt að 25 prósenta raunverðslækkun áður en botninn verður sleginn í markaðinn snemma árs 2027. Aðgengi almennings að verðtryggðum íbúðalánum hefur ekki verið jafn þröngt í seinni tíð og núna.

Deila Facebook X LinkedIn