Vanskilahlutfall þrefaldast á fyrri hluta árs
Vanskil í byggingariðnaði hafa aukist verulega á fyrstu sex mánuðum ársins, en vanskilahlutfallið hefur nærri þrefaldast. Samtök iðnaðarins (SI) telja að peningastefnunefnd eigi að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,75% til að forðast frekari þrengingar í greininni.

Skuldir byggingariðnaðarins hjá stóru viðskiptabönkunum þremur námu 476 milljörðum króna um mitt ár, sem er 74 milljarða króna aukning frá áramótum. Alvarleg vanskil, þau sem eru í meira en 90 daga, námu 29,7 milljörðum króna um mitt ár, samanborið við 9,3 milljarða króna um áramót. Vanskilahlutfallið hækkaði því úr 2,3% í 6,2% á þessu tímabili.
Frekari vaxtahækkanir myndu hækka fjármagnskostnað enn frekar og þrengja að byggingariðnaðinum. Samtök iðnaðarins telja að þetta myndi leiða til minni fjárfestingar, aukins atvinnuleysis til skamms tíma og minna framboðs íbúða þegar fram í sækir.
Samtök iðnaðarins benda á að hagkerfið kólnar hratt og aðhald peningastefnunnar er mikið. Þau telja að staðan kalli á þjóðarsátt þar sem hagstjórnaraðilar finna samhljóm um aðgerðir til að ná niður verðbólgu og vöxtum.