Vanskil heimila og fyrirtækja í sögulegu lágmarki
Vanskil heimila og fyrirtækja eru í sögulegu lágmarki samkvæmt greiningu Motus. Fjárhagslegt heilbrigði í hagkerfinu er gott að mati sérfræðings.
Vanskil heimila og fyrirtækja eru í sögulegu lágmarki, samkvæmt greiningu Motus, eins stærsta innheimtu- og kröfustýringarfyrirtækis landsins. Fjárhagslegt heilbrigði í hagkerfinu er gott að mati sérfræðings og í samræmi við mat Seðlabankans á skuldum heimila og fyrirtækja.
Vanskil eiga við um reikninga sem eru ekki greiddir á eindaga. Vanskil eru talin alvarleg ef reikningarnir eru enn ógreiddir 45 dögum eftir eindaga. Motus hefur um árabil vakað yfir breytingum á vanskilum.
Leifur Grétarsson, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Motus, segir að vanskil einstaklinga hafi lækkað talsvert í Covid-tímanum og þau haldi áfram að lækka. „Í sögulegu samhengi þá hafa vanskil aldrei verið lægri hjá einstaklingum og við erum ekki að sjá miklar breytingar þar á í okkar tölum,“ segir Leifur.
Hann viðurkennir að tölurnar komi mörgum á óvart, sérstaklega í ljósi umræðu um mikla verðbólgu og háa vexti. „Það er náttúrulega rosalega mikill þrýstingur í hagkerfinu og umræðan á kaffistofunum landsins er þannig að það gangi ekkert svakalega vel. En þetta er ákveðið heilbrigðisvottorð sem þessi gögn sýna. Ég myndi segja að fjárhagslegt heilbrigði í hagkerfinu sé gott ef litið er til vanskila,“ segir Leifur.
Vanskil heimila og fyrirtækja hafa aldrei mælst minni en nú, og það sama á við um skuldastöðu. Niðurstöðurnar bera merki um heilbrigt hagkerfi, þrátt fyrir háa verðbólgu og vexti, samkvæmt sérfræðingi.
Vanskil fyrirtækja eru einnig lítil og hafa minnkað undanfarin tvö ár. Hins vegar eru merki um að vanskil aukist í byggingar- og ferðamannageiranum á síðustu mánuðum.
Heimild: RÚV