Væri einsdæmi ef Eyjamenn þyrftu að greiða fyrir almannavarnir

Miðað við fyrstu prófanir heldur nýja vatnslögnin sem var lögð til Vestmannaeyja þrýstingi – þrátt fyrir skemmdir.„Þannig að við erum vongóð um að hún sé nothæf til að flytja vatn en við vitum ekki alveg ástandið á henni,“ segir Eyþór Harðarson, form

Væri einsdæmi ef Eyjamenn þyrftu að greiða fyrir almannavarnir
Mynd: needpix.com (CC0)

Miðað við fyrstu prófanir heldur nýja vatnslögnin sem var lögð til Vestmannaeyja þrýstingi – þrátt fyrir skemmdir.„Þannig að við erum vongóð um að hún sé nothæf til að flytja vatn en við vitum ekki alveg ástandið á henni,“ segir Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs í Vestmannaeyjum.Óttast var að altjón hefði orðið á nýju lögninni í ágúst þegar hún skemmdist þegar verið var að leggja hana. Ákveðið var samt að klára útlagninguna og miðað við fyrstu prófanir hefur þrýstingur haldist á lögninni.„Það varð tjón við lagningu lagnarinnar, eða mistök, hún beyglaðist eitthvað. Hvað það hefur mikil áhrif á framtíð þessarar lagnar verður bara að koma í ljós, vonandi með skýrslu frá útlagningaraðilum og kapalframleiðanda,“ segir Eyþór.Lögnin sem veitir Vestmannaeyingum vatn nú skemmdist fyrir þremur árum þegar akkeri togarans Hugins VE hafnaði á lögninni. Þess vegna var talið nauðsynlegt að leggja varalögn sem bæjarráð hefur reynt að fá samþykkta sem almannavarnalögn.Bæjarsjóður og íbúar beri kostnaðinn enn sem komið erHeildarkostnaður við nýju lögnina hleypur á þremur milljörðum. Ríkið hafði samþykkt að leggja til 800 milljónir sem bæjarráð segir ríkið nú taka að stórum hluta til baka með álagningu og tollum. Þau hafa óskað eftir endurgreiðslu virðisaukaskatts af lögninni, sem var hafnað.„Það kom svar frá ráðuneytinu um að það væri lagalega ekki hægt, sem eru mikil vonbrigði fyrir okkur. Við þurfum þá að leggja út fyrir því líka áður en endanlega samtalið við ríkið klárast. Ég er vongóður um það að ríkið viðurkenni þetta sem almannavarnalögn og fjármagni hana, eins og aðrar almannavarnir á Íslandi,“ segir Eyþór.Og ef ríkið kemur ekki inn, hvernig verður þá greitt fyrir lögnina?„Þá sitjum við Vestmannaeyingar uppi með það, bæjarsjóður og íbúar í Vestmannaeyjum, að greiða fyrir almannavarnir örugglega einn kaupstaða á landinu, eða ég get ímyndað mér það.“Fresta framkvæmdum vegna óvissuBæjarráð Vestmannaeyja segir í bókun á síðasta fundi óásættanlegt að samtalinu við ríkið um fjármögnun lagnarinnar sé ekki lokið enda sé framkvæmdin á lokastigi.„Ég hef ekki trú á því að einhver hafni því að þessi vatnslögn verði gerð að almannavarnamáli. Við erum að fresta alls konar framkvæmdum, stækkun á skólahúsnæði og fleira bara út af svona óvissu sem er í gangi í dag,“ segir Eyþór.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn