Vaðölduver: Fyrsta vindmyllan komin upp

Ljósmynd: Trygve Finkelsen / Pexels
Ljósmynd: Trygve Finkelsen / Pexels

Fyrsta vindmyllan af 28 í Vaðölduveri er nú komin á sinn stað, sem markar mikilvæg tímamót í uppbyggingu verksins. Vindmyllurnar, sem eru af gerðinni ENERCON E-138 EP3 E3, hafa uppsett afl upp á 4,26 MW hver. Heildarhæð hverrar myllu er um 150 metrar þegar spaði er í efstu stöðu, með spaðahring sem er 138 metrar í þvermál.

Uppsetningu hinna 27 vindmyllnanna verður haldið áfram í áföngum og er stefnt að því að ljúka verkinu fyrir lok árs 2027. Hver vindmylla er samsett úr fjölda stórra og þungra íhluta. Turninn einn og sér er settur saman úr þremur einingum; neðsta og miðjueiningin vega um 69 tonn hvor, en efsta einingin er tæp 60 tonn. Þessar einingar mynda burðarvirkið sem heldur uppi vélbúnaði myllunnar.

Íhlutir og þyngd

Efst á turninum er vélarhúsið, sem vegur 71 tonn með spenni, og hýsir stóran hluta raf- og stýribúnaðar. Við vélarhúsið tengist naf vindmyllunnar, sem vegur um 40 tonn og tengir spaðana þrjá við vélbúnaðinn. Hver spaði er tæplega 69 metra langur og vegur um 24 tonn. Rafallinn, sem breytir snúningsorku í raforku, er samsettur úr stórum einingum, þar á meðal 45 tonna miðhluta rafalarótors og tveimur 38 tonna hálfmánum sáturs rafala. Samanlagt vegur vélbúnaður einnar vindmyllu um 350 tonn.

Þessi áfangi í Vaðölduveri undirstrikar framgang verkefnisins sem mun skila umtalsverðri viðbót við raforkuframleiðslu landsins.

Sjá nánar: landsvirkjun.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →