Vaðölduver fer brátt í gang

Fyrsta vindmylluver landsins, Vaðölduver, er á lokastigi uppsetningar og verður sett í gang fljótlega. Allar fjórtán vindmyllurnar sem rísa á þessu ári eru komnar í tækniprófun.

Vaðölduver fer brátt í gang
Mynd: Adam Clark / Pexels

Vaðölduver, fyrsta vindmylluver landsins, er á lokastigi uppsetningar og verður sett í gang fljótlega.

Allar fjórtán vindmyllurnar sem rísa á þessu ári hafa verið settar upp og eru nú í tækniprófun. Næsta skref er að gangsetja þær.

Alls verða vindmyllurnar 28 og er ráðgert að þær verði komnar í fulla framleiðslu fyrir lok næsta árs. Samkvæmt tilkynningu Landsvirkjunar munu fyrstu myllurnar byrja að framleiða raforku inn á kerfið um miðjan þennan mánuð.

Framkvæmdir við verkið hófust í maí. Vindmyllurnar eru um 150 metra háar þegar spaðarnir eru í hæstu stöðu.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn