Vaðlaborgir B íbúðarsvæði, Svalbarðsstrandarhreppi – auglýsing deiliskipulagstillögu
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir nýja íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B. Tillagan var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 18. ágúst 2026 og er nú auglýst í samræmi við skipulagslög. Deiliski
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir nýja íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B. Tillagan var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 18. ágúst 2026 og er nú auglýst í samræmi við skipulagslög.
Deiliskipulagssvæðið nær yfir um 3,5 hektara í landi Vaðlaborga B, nánar tiltekið neðan Veigastaðavegar. Svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði ÍB19 í Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps og fellur undir rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði. Í tillögunni eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir sex íbúðarhús, og er gert ráð fyrir aðkoma að svæðinu verði frá Veigastaðavegi. Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu SBE, Skólatröð 9, Eyjafjarðarsveit.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Svalbardsstrandarhreppur
Heimild: Svalbardsstrandarhreppur