Útsýnisskálinn opnaður
Útsýnisskálinn Sjónarhorn Flakkarans var opnaður í dag í Vestmannaeyjum, en hann er hluti af stærra listaverki sem einnig felur í sér göngustíg umhverfis gíginn í Eldfelli. Göngustígurinn er hannaður til að vernda viðkvæma náttúru svæðisins og auka ö
Útsýnisskálinn Sjónarhorn Flakkarans var opnaður í dag í Vestmannaeyjum, en hann er hluti af stærra listaverki sem einnig felur í sér göngustíg umhverfis gíginn í Eldfelli. Göngustígurinn er hannaður til að vernda viðkvæma náttúru svæðisins og auka öryggi ferðalanga.
Verkefnið í heild er fjármagnað að fullu, en göngustígurinn hlaut hæsta styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, eða um 107 milljónir króna, sem atvinnuvegaráðherra úthlutaði. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við stíginn hefjist innan skamms og verði lokið fyrir áramót. Þannig verður listaverkið fullfrágengið í heild sinni fyrir 23. janúar næstkomandi, þegar 54 ár verða liðin frá upphafi eldgossins.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Vestmannaeyjabær
Heimild: Vestmannaeyjabær