VEU-2609-0066 HAB: SKORHOLT, BAKKI

Veitur óska eftir tilboðum í endurnýjun á um 1550 metra löngum kafla hitaveitulagnar í landi Skorholts og Bakka. Verkefnið felur í sér lagningu á nýrri DN450 foreinangraðri hitaveitulögn í nýrri legu, sem er um 1900 metrar að lengd. Lagnaleiðin liggu

VEU-2609-0066 HAB: SKORHOLT, BAKKI
Mynd: flickr / CC BY-SA / Pexels

Veitur óska eftir tilboðum í endurnýjun á um 1550 metra löngum kafla hitaveitulagnar í landi Skorholts og Bakka. Verkefnið felur í sér lagningu á nýrri DN450 foreinangraðri hitaveitulögn í nýrri legu, sem er um 1900 metrar að lengd. Lagnaleiðin liggur frá festu í landi Bakka, merkt DT-362, að hitaveitubrunni í landi Skorholts, merktur DT-370.

Auk lagningarinnar felst verkið í niðurrifi á brunnum merktum DT-363, DT-364, DT-369 og DT-370. Eftir að nýja lögnin hefur verið tengd skal verktaki fjarlægja núverandi Ø400 asbestlögn og allan búnað sem henni tengist. Frágangur á yfirborði lagnastæðis beggja lagna er einnig hluti af verkinu. Veitur útvega allt efni í hitaveituna, svo sem rör, fittings, loka, hólka og krumpur, auk efnis í ræsi undir hitaveitupípur. Öll útboðsgögn eru aðgengileg frá 7. október 2026 kl. 10:00 og skilafrestur tilboða er til 5. nóvember 2026 kl. 14:00.

→ Sjá útboð á Útboðsvefur.is

Heimild: Útboðsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn