VEU-2609-0063 Þjónusta og viðhald vél- og rafbúnaðar
Veitur ohf. óska eftir þátttakendum í rammasamninga um þjónustu og viðhald á vél- og rafbúnaði. Tilgangur útboðsins er að koma á samningum um bilanaþjónustu, viðhald og uppsetningu á vél- og rafbúnaði sem tengist veitukerfum fyrirtækisins, þ.e. hitav
Veitur ohf. óska eftir þátttakendum í rammasamninga um þjónustu og viðhald á vél- og rafbúnaði. Tilgangur útboðsins er að koma á samningum um bilanaþjónustu, viðhald og uppsetningu á vél- og rafbúnaði sem tengist veitukerfum fyrirtækisins, þ.e. hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu. Útboðsgögn voru afhent 5. október 2026 og skilafrestur tilboða er til 5. nóvember 2026 kl. 14:00.
Verkinu er skipt í tvo flokka: rafvirkjavinnu og málmiðnaðarvinnu ásamt rafmagni vélbúnaðar. Bjóðendum er heimilt að bjóða í annan hvorn flokkinn eða báða, að því gefnu að þeir uppfylli tilskildar kröfur. Markmiðið er að gera samning við allt að tvo samstarfsaðila í hvorum flokki sem munu vinna náið með Veitum.
Heimild: Útboðsvefur.is