Verðfyrirspurn – Útiæfingasvæði við EKRU
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Útiæfingasvæði við Ekru“. Verkið felst í fullnaðarfrágangi á nýju útiæfingasvæði og nær til uppgraftar, jarðvegsskipta, uppbyggingar burðarlaga, yfirborðsfrágangs, uppsetningar æfingatækja og
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Útiæfingasvæði við Ekru“. Verkið felst í fullnaðarfrágangi á nýju útiæfingasvæði og nær til uppgraftar, jarðvegsskipta, uppbyggingar burðarlaga, yfirborðsfrágangs, uppsetningar æfingatækja og frágangs grassvæða, kanta og afmörkunar. Verktaki skal framkvæma alla verkþætti samkvæmt teikningum, verklýsingu og fyrirmælum verkkaupa.
Verklok eru áætluð 15. ágúst 2026. Við undirritun samnings skal liggja fyrir greinargóð tímaáætlun um gang verksins, unnin í samráði við verkkaupa og samþykkt af honum. Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi og verktaki hafa undirritað verksamning.
Tilboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is eða til vara á trausti@hornafjordur.is og óska eftir útboðsgögnum í verkið „ÚTIÆFINGASVÆÐI VIÐ EKRU“. Fyrirspurnir skal senda á trausti@hornafjordur.is í síðasta lagi þremur virkum dögum fyrir opnunardag tilboða. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði eða undirritað á netfangið trausti@hornafjordur.is eigi síðar en fimmtudaginn 11. júní 2026 kl. 12:00.
Heimild: Útboðsvefur.is