Verðfyrirspurn – Þróun þjónustulags gagnavistkerfis og Model Context Protocol (MCP) viðmóts.
Fjársýslan, í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið, óskar eftir tilboðum í þróun þjónustulags gagnavistkerfis og Model Context Protocol (MCP) viðmóts. Um er að ræða verðfyrirspurn vegna innkaupa undir viðmiðunarfjárhæðum, samkvæmt 24. grein l
Fjársýslan, í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið, óskar eftir tilboðum í þróun þjónustulags gagnavistkerfis og Model Context Protocol (MCP) viðmóts. Um er að ræða verðfyrirspurn vegna innkaupa undir viðmiðunarfjárhæðum, samkvæmt 24. grein laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Markmiðið með verkefninu er að þróa og innleiða nothæft og öruggt gagnavistkerfi. Þetta kerfi mun gera skilgreindum notendahópi kleift að nýta gervigreind til að spyrja spurninga á náttúrulegu máli um afmarkað gagnasvið. Svarlausnin á að veita rekjanleg svör sem byggð eru á samþykktum gögnum, viðskiptaskilgreiningum og aðgangsheimildum.
Lausnin er hönnuð til að styðja upplýsta ákvarðanatöku um rekstur, fjármál og afkomu stofnana, draga fram frávik og áhættumerki, bera saman sambærilegar stofnanir og styðja við frekari greiningu. Ábyrgð og ákvörðunartaka mun áfram vera hjá starfsfólki og stjórnendum. Fyrirspurnarfrestur er til 6. október 2026 og svarfrestur til 9. október 2026. Skilafrestur tilboða er 14. október 2026. Fyrirhugað verktímabil er frá 1. nóvember 2026 til 31. janúar 2027. Tilboðum skal skilað á netfangið sigurjon.thrainsson@fjs.is. Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Þráinsson, sviðsstjóri umbóta- og þróunarsviðs.
Heimild: Útboðsvefur.is