Verðfyrirspurn – Leikvöllur í Nesjum
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur óskað eftir tilboðum í fullnaðarfrágang á nýjum leikvelli í Nesjum. Framkvæmdir fela í sér uppgröft, jarðvegsskipti, uppbyggingu burðarlaga og uppsetningu leiktækja.
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í fullnaðarfrágang á nýjum leikvelli í Nesjum.
Verkið felur í sér uppgröft, jarðvegsskipti, uppbyggingu burðarlaga, yfirborðsfrágang, uppsetningu leiktækja og frágang grassvæða, kanta og afmörkunar.
Verktaki skal framkvæma alla verkþætti samkvæmt teikningum, verklýsingu og fyrirmælum verkkaupa.
Framkvæmdartími hefst við undirritun verksamnings og skal verkinu lokið eigi síðar en 15. október 2026.
Tilboðsfrestur rennur út fimmtudaginn 20. ágúst 2026 klukkan 14:00.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði, eða undirrituð á netfangið trausti@hornafjordur.is.
Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og til vara á trausti@hornafjordur.is.
Fyrirspurnir skulu berast í síðasta lagi þremur virkum dögum fyrir opnunardag tilboða á netfangið trausti@hornafjordur.is.
Nánari upplýsingar veitir Trausti Magnússon.
Heimild: Útboðsvefur.is