Útboð: Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026.

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki, sunnan við núverandi Safnahús við Faxatorg. Verkið, sem ber heitið „Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026“, felur í sér uppgröft á um 7.300 rúmme

Útboð: Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026.
Mynd: Peter Dyllong / Pexels

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki, sunnan við núverandi Safnahús við Faxatorg. Verkið, sem ber heitið „Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026“, felur í sér uppgröft á um 7.300 rúmmetrum af óburðarhæfum jarðvegi sem verður fjarlægður og fluttur á viðurkenndan losunarstað. Að því loknu skal komið fyrir um 7.800 rúmmetrum af burðarhæfri fyllingu til undirbúnings frekari byggingarframkvæmdum.

Auk jarðvegsskipta nær verkið til hluta jarðvatnslagna fyrir húsið og gerð heimæða fyrir fráveitu inn á lóðina, en fráveitulagnir eru alls 280 metrar. Sérstakar kröfur eru gerðar um hæfni og reynslu bjóðenda. Aðalhönnun er í höndum Arkís arkitekta ehf., verkfræðihönnun Verkís ehf. og lóðarhönnun Landhönnun slf.

Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 5. maí 2026. Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi til Stoðar verkfræðistofu ehf. á Aðalgötu 21, 550 Sauðárkróki, eða í tölvupósti á stod@stodehf.is. Skilafrestur er til 22. maí 2026 kl. 12:00 og verða tilboð opnuð sama dag kl. 13:00. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í lok maí 2026 og að verkinu verði að fullu lokið eigi síðar en 31. júlí 2026.

→ Sjá útboð á Útboðsvefur.is

Heimild: Útboðsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →