Þotugildrur á Keflavíkurflugvelli
Fjársýslan hefur auglýst útboð vegna uppbyggingar og ísetningar þotugildra við fjóra flugbrautarenda á Keflavíkurflugvelli, auk niðurrifs eldri gildra. Verkefnið er auglýst af innkaupastofnun Atlantshafsbandalagsins (NSPA) og ber númerið TZS26002 – A
Fjársýslan hefur auglýst útboð vegna uppbyggingar og ísetningar þotugildra við fjóra flugbrautarenda á Keflavíkurflugvelli, auk niðurrifs eldri gildra. Verkefnið er auglýst af innkaupastofnun Atlantshafsbandalagsins (NSPA) og ber númerið TZS26002 – Arrestor gear chamber construction – Keflavik air base.
Utanríkisráðuneytið, varnarmálaskrifstofa og Landhelgisgæslan, varnarmálasvið, vekja athygli á útboðinu. Tilboðsgögn verða afhent frá og með 13. október 2026 klukkan 08:00 og skilafrestur er til 14. desember 2026 klukkan 12:00. Tilboð verða opnuð klukkan 13:00 sama dag. Mikilvægt er að bjóðendur skrái sig á bjóðendalista NSPA fyrir lok útboðsfrests til að tilboð þeirra verði metin gild.
Heimild: Útboðsvefur.is