Supply of BRT Street light poles – Ljósastaurar og lampar fyrir Borgarlínustöðvar
Betri samgöngur ohf. auglýsir eftir tilboðum í ljósastaura og lampa fyrir Borgarlínustöðvar. Verkið nær yfir kaup og afhendingu á ljósastaurum með tilheyrandi búnaði og varahlutum, og mun fara fram í áföngum til ársins 2030.
Betri samgöngur ohf. óskar eftir tilboðum í ljósastaura og lampa fyrir Borgarlínustöðvar.
Um er að ræða kaup og afhendingu á ljósastaurum með lömpum, ásamt undirstöðuplötum og varahlutum.
Verkið mun fara fram í áföngum á árunum 2027–2030. Kaupandi áskilur sér rétt til viðbótarkaupa fyrir aðra áfanga Borgarlínunnar til ársloka 2034.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvefnum tendsign.is. Skilafrestur tilboða er til 27. október 2026 kl. 14:00.
Heimild: Útboðsvefur.is