Reykjanesbraut (41), gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar og hluti 3. lotu Borgarlínu, hönnun
Vegagerðin og Veitur ohf. hafa hafið útboð á for- og verkhönnun vegna endurgerðar gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, auk hönnunar á Borgarlínu í Vogabyggð.
Vegagerðin og Veitur ohf. hafa hafið útboð á for- og verkhönnun vegna endurgerðar gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Samhliða verður hannað fyrir Borgarlínu, þriðju lotu hennar, frá Stekkjarbakka A-V að væntanlegri skiptistöð í Vogabyggð við Súðarvog.
Framkvæmdirnar fela í sér byggingu tveggja nýrra brúa undir Vesturlandsveg við vestari kvísl Elliðaár, lengingu á tveimur núverandi undirgöngum og nýja brú fyrir ramp á gatnamótum við Bústaðaveg. Til að forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals verður Reykjanesbraut hliðfærð til vesturs á ákveðnum kafla.
Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. júlí 2026. Tilboðum skal skilað rafrænt fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 13. ágúst 2026, en opnun tilboða fer fram kl. 14:15 sama dag. Bjóðendum verður tilkynnt um nöfn samkeppnisaðila eftir lok tilboðsfrests og niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda verða birtar fimmtudaginn 27. ágúst 2026. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Heimild: Útboðsvefur.is