Rekstraraðili nýs hjúkrunarheimilis að Þursaholti á Akureyri

Fjársýslan, fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands, óskar eftir hæfum þjónustuveitendum til reksturs nýs hjúkrunarheimilis að Þursaholti á Akureyri. Um er að ræða nýtt hjúkrunarheimili með allt að 140 hjúkrunarrýmum, sem mun vera staðsett að Þursaholti 6

Rekstraraðili nýs hjúkrunarheimilis að Þursaholti á Akureyri
Mynd: Jsme MILA / Pexels

Fjársýslan, fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands, óskar eftir hæfum þjónustuveitendum til reksturs nýs hjúkrunarheimilis að Þursaholti á Akureyri. Um er að ræða nýtt hjúkrunarheimili með allt að 140 hjúkrunarrýmum, sem mun vera staðsett að Þursaholti 6 á Akureyri. Útboðsgögn verða afhent 4. maí 2026 kl. 06:00 og skilafrestur tilboða er 4. júní 2026 kl. 12:00. Tilboð verða opnuð klukkan 13:00 sama dag.

Markmið samninga um þjónustu hjúkrunarheimila er að tryggja öldruðum og/eða fjölveikum einstaklingum einstaklingsmiðaða, heildræna og örugga þjónustu á hjúkrunarheimili. Útboðsferlið er samkvæmt VIII. kafla laga um opinber innkaup, sem fjallar um sérreglur um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu, svokallaða „létta leið“. Auk VIII. kafla gilda ákvæði XI. og XII. kafla um innkaup samkvæmt léttu leiðinni.

→ Sjá útboð á Útboðsvefur.is

Heimild: Útboðsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →