Raforkukaup vegna tapa í raforkudreifikerfi Norðurorku.
Norðurorka hefur auglýst eftir tilboðum í raforkukaup vegna tapa í dreifikerfi sínu. Árleg notkun nemur tæplega 6 GWh.
Norðurorka hefur auglýst eftir tilboðum í raforkukaup vegna tapa í raforkudreifikerfi fyrirtækisins.
Um er að ræða innkaup á raforku þar sem árleg notkun nemur tæplega 6 GWh, en gert er ráð fyrir sveiflum milli ára.
Samningstíminn er tveggja ára, með heimild til framlengingar tvisvar sinnum um eitt ár í senn.
Útboðsgögn verða afhent frá og með 21. ágúst 2026. Skilafrestur tilboða er til 17. september 2026 klukkan 14:00, en þá verða tilboðin einnig opnuð.
Hægt er að óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst til Ingvars J. Baldurssonar. Tilboð skulu berast EFLU verkfræðistofu.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Heimild: Útboðsvefur.is