Raforkukaup fyrir veitukerfi Norðurorku
Norðurorka hefur hafið útboð vegna raforkukaupa til rekstrar veitukerfa sinna. Um er að ræða innkaup á forgangsorku fyrir áætluð 12,1 GWh á ári.
Norðurorka óskar eftir tilboðum í raforkukaup til rekstrar veitukerfa fyrirtækisins. Um er að ræða innkaup á forgangsorku.
Heildarársnotkun er áætluð um 12,1 GWh, sem dreifist á 18 fjarmældar veitur og 90 álesna mæla. Samningstími er tvö ár með heimild til framlengingar tvisvar sinnum um eitt ár í senn.
Útboðsgögn verða afhent frá og með 21. ágúst 2026. Skilafrestur tilboða er til 17. september 2026 klukkan 14:00, en þá verða tilboðin einnig opnuð.
Hægt er að óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst til Ingvars J. Baldurssonar hjá EFLU verkfræðistofu. Tilboð skulu berast EFLU verkfræðistofu á netfangið utbod@efla.is.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Heimild: Útboðsvefur.is