Rafkerfi fyrir meðferðarkjarna NLSH
Nýr Landspítali ohf. óskar eftir tilboðum í uppsetningu og frágang rafkerfa fyrir nýjan meðferðarkjarna spítalans. Útboðið nær yfir vinnu frá neðri kjallara K2 upp á fjórðu hæð hússins, auk þess sem verkið felur í sér stýringar og endabúnað á fimmtu
Nýr Landspítali ohf. óskar eftir tilboðum í uppsetningu og frágang rafkerfa fyrir nýjan meðferðarkjarna spítalans. Útboðið nær yfir vinnu frá neðri kjallara K2 upp á fjórðu hæð hússins, auk þess sem verkið felur í sér stýringar og endabúnað á fimmtu og sjöttu hæð. Meðferðarkjarninn er um 71 þúsund fermetrar að stærð og telur alls átta hæðir, þar af tvær neðanjarðar.
Verkefnið er umfangsmikið og tekur til hefðbundinna lág- og smáspennulagna, ljósabúnaðar, lýsingarkerfa og ljósastýringa. Þá fellur deilhönnun ýmissa smáspennukerfa undir útboðið, þar á meðal hússtjórnarkerfi lagna og loftræsingar. Einnig er innifalinn frágangur á fjölbreyttum sérkerfum, svo sem gagnaflutnings-, loftneta-, rýmingar- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt aðgangs-, innbrota-, öryggismyndavéla-, árásar-, neyðarboð- og gasslökkvikerfum.
Tilboðum í verkið skal skila fyrir klukkan 13:00 þann 15. desember 2026, en samskipti og fyrirspurnir vegna útboðsins fara fram í gegnum rafræna útboðskerfið Tendsign.
Heimild: Útboðsvefur.is