ONU-2604-0013 Endurnýjun endabúnaðar rafala á Nesjavöllum

Orka náttúrunnar óskar eftir tilboðum í verkefnið „ONU-2604-0013 Endurnýjun endabúnaðar rafala á Nesjavöllum“, sem felst í endurnýjun endabúnaðar rafala á Nesjavöllum (Vél 1). Útboðsgögn verða afhent 15. maí 2026 klukkan 15:00 og skilafrestur tilboða

ONU-2604-0013 Endurnýjun endabúnaðar rafala á Nesjavöllum
Mynd: Lisa Anna / Pexels

Orka náttúrunnar óskar eftir tilboðum í verkefnið „ONU-2604-0013 Endurnýjun endabúnaðar rafala á Nesjavöllum“, sem felst í endurnýjun endabúnaðar rafala á Nesjavöllum (Vél 1). Útboðsgögn verða afhent 15. maí 2026 klukkan 15:00 og skilafrestur tilboða er til 5. júní 2026 klukkan 11:00. Tilboð verða opnuð sama dag klukkan 11:00.

Verkið skiptist í tvo verkáfanga. Fyrri áfanginn, kaup á nýjum endabúnaði fyrir rafalann (Vél 1), hefur skiladag 28. febrúar 2027. Seinni áfanginn, framkvæmd verksins sem felst í útskiptum á endabúnaði rafala (Vél 1), hefur skiladag 31. ágúst 2027. Ráðgert er að framkvæmdir við endurnýjunina fari fram samkvæmt viðhaldsáætlun sumarið 2027 og er áætlað að framkvæmdartími taki allt að þrjár vikur.

→ Sjá útboð á Útboðsvefur.is

Heimild: Útboðsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →