Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki, sunnan við núverandi Safnahús við Faxatorg. Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 5. maí 2026 og skilafrestur tilboða er til 22. maí 2026 kl. 12:
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki, sunnan við núverandi Safnahús við Faxatorg. Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 5. maí 2026 og skilafrestur tilboða er til 22. maí 2026 kl. 12:59.
Verkið felur í sér uppgröft á óburðarhæfum jarðvegi, sem verður fjarlægður og fluttur á viðurkenndan losunarstað. Að loknum uppgreftri skal komið fyrir burðarhæfri fyllingu til undirbúnings frekari byggingarframkvæmdum. Einnig nær verkið til jarðvegsskipta á lóð menningarhússins og hluti jarðvatnslagna ásamt gerð heimæða fyrir fráveitu inn á lóðina.
Helstu magntölur verksins eru um 7300 rúmmetrar af gröftum á lausum jarðvegi, um 7800 rúmmetrar af fyllingum og 280 metrar af fráveitulögnum. Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi til Stoðar verkfræðistofu ehf. á Aðalgötu 21, 550 Sauðárkróki, eða í tölvupósti. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í lok maí 2026 og að verkinu verði að fullu lokið eigi síðar en 31. júlí 2026.
Heimild: Útboðsvefur.is