Markaðskönnun vegna nýs íþróttahúss á Eskifirði
Ráðgjafarfyrirtækið Consensa hefur auglýst markaðskönnun fyrir hönd Fjarðabyggðar vegna fyrirhugaðrar byggingar nýs íþróttahúss á Eskifirði. Sveitarfélagið kannar nú tvo ólíka kosti varðandi framkvæmdina og fyrirkomulag mannvirkisins.
Undirbúningur er hafinn að byggingu nýs íþróttahúss við sundlaugina að Dalbraut 3a á Eskifirði. Ráðgjafarfyrirtækið Consensa hefur auglýst markaðskönnun fyrir hönd Fjarðabyggðar til að leita eftir sjónarmiðum og upplýsingum frá markaðsaðilum.
Sveitarfélagið kannar nú tvo ólíka kosti varðandi framkvæmdina og fyrirkomulag mannvirkisins. Annars vegar er skoðað að verktaki byggi íþróttahúsið beint fyrir Fjarðabyggð, en hins vegar að einkaaðili taki að sér að fjármagna, byggja og eiga mannvirkið og leigja það sveitarfélaginu til langs tíma.
Könnunin fer fram í gegnum rafræna útboðskerfið TendSign og hefur frestur til að skila inn svörum og upplýsingum verið settur til 3. desember 2026.
Heimild: Útboðsvefur.is