Leiksskólinn Grandaborg, kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur, útboð nr. 16304

Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í hönnun, smíði og lóðafrágang vegna tveggja nýrra kennslustofa við Leikskólann Grandaborg, ásamt tengibyggingu. Verkið felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu kennslustofanna, sem hvor um sig er 96 fer

Leiksskólinn Grandaborg, kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur, útboð nr. 16304
Mynd: Braggi.is / Pexels

Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í hönnun, smíði og lóðafrágang vegna tveggja nýrra kennslustofa við Leikskólann Grandaborg, ásamt tengibyggingu. Verkið felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu kennslustofanna, sem hvor um sig er 96 fermetrar, og tengibyggingar sem er um 30 fermetrar, samtals 222 fermetrar. Kennslustofurnar skulu vera úr timbri og hannaðar til að hægt sé að flytja þær í heilu lagi.

Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Þá felur verkið í sér lóðarvinnu og lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. Áætlaður lokadagur framkvæmdatíma er 2. júlí 2027.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá klukkan 14:30 þann 5. maí 2026. Vettvangsskoðun á Leikskólanum Grandaborg fer fram þann 13. maí 2026 klukkan 15:30. Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvefinn eigi síðar en klukkan 10:00 þann 28. maí 2026. Fyrirspurnum skal eingöngu skila í gegnum útboðsvefinn.

→ Sjá útboð á Útboðsvefur.is

Heimild: Útboðsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →