Leikskólinn Furugrund 1 – Endurnýjun á þaki
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í endurnýjun á þaki Leikskólans Furugrund 1. Verkið felst í að endurnýja þak á leikskólanum í Kópavogi, sem er uppstólað, kalt þak án steyptrar plötu. Skipta skal um þakjárn, þakpappa og klæðningu á þakkanti. Einnig e
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í endurnýjun á þaki Leikskólans Furugrund 1. Verkið felst í að endurnýja þak á leikskólanum í Kópavogi, sem er uppstólað, kalt þak án steyptrar plötu. Skipta skal um þakjárn, þakpappa og klæðningu á þakkanti. Einnig er gert ráð fyrir að endurnýja þurfi þaktúður að hluta og þakrennur.
Útboðsaðili er Kópavogsbær og er um verðfyrirspurn að ræða. Útboðsauglýsingin var birt þann 5. maí 2026 kl. 11:00. Skilafrestur tilboða er til 19. maí 2026 kl. 12:00 og verða tilboð opnuð rafrænt í TendSign kerfinu kl. 12:01 sama dag. Verðfyrirspurnargögn eru aðgengileg í útboðskerfinu Tendsign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt í gegnum kerfið.
Heimild: Útboðsvefur.is