KVÍSLATUNGUVIRKJUN – VETTVANGSSKOÐUN
Orkubú Vestfjarða ohf. undirbýr útboð vegna mannvirkjagerðar Kvíslatunguvirkjunar, 9,9 MW vatnsaflsvirkjunar, sem staðsett verður í Selárdal í Steingrímsfirði, um 20 km frá Hólmavík. Fyrirhugað er að útboðsgögn verði birt um miðjan október 2026 og að
Orkubú Vestfjarða ohf. undirbýr útboð vegna mannvirkjagerðar Kvíslatunguvirkjunar, 9,9 MW vatnsaflsvirkjunar, sem staðsett verður í Selárdal í Steingrímsfirði, um 20 km frá Hólmavík. Fyrirhugað er að útboðsgögn verði birt um miðjan október 2026 og að framkvæmdir standi yfir á árunum 2027–2029.
Vegna árstíma og veðuraðstæðna á framkvæmdasvæðinu býður Orkubú Vestfjarða ohf. áhugasömum verktökum til vettvangsskoðunar áður en útboðsgögn verða birt. Stefnt er að vettvangsskoðuninni 8. eða 9. október 2026 kl. 12:00, eftir því hvor dagurinn hentar betur með hliðsjón af veðri og aðstæðum.
Aðkoma að vinnusvæðinu er frá Djúpvegi (61) um Strandaveg (643) að Geirmundarstaðavegi (6433) og loks eftir nýgerðum aðkomuvegi að væntanlegu stöðvarhúsi, Kvíslatunguvegi. Rétt fyrir sunnan væntanlegt stöðvarhús liggur 5 km nýr vegur upp Leitishlíðina að staðsetningu fyrirhugaðs inntakshúss, en sá vegur er enn í byggingu. Helstu magntölur í væntanlegu útboði eru 550 m³ af steinsteypu og 340 m² af forsteyptum einingum. Verktaki þarf að gera ráð fyrir að útvega efni til steypugerðar annars staðar frá þar sem ekki er talið að heppilegt efni sé að finna á framkvæmdasvæðinu.
Virkjunarleyfi hefur verið gefið út en framkvæmdaleyfi liggur ekki fyrir þar sem unnið er að breytingum á aðal- og deiliskipulagi í kjölfar jarðvegsrannsókna sumarið 2026. Gert er ráð fyrir að framkvæmdaleyfi verði veitt á fyrsta ársfjórðungi 2027.
Heimild: Útboðsvefur.is