Kaup á áritanamiðum fyrir útgáfu vegabréfsáritana
Fjársýslan, fyrir hönd utanríkisráðuneytis Íslands, óskar eftir tilboðum í útboð nr. 23374 um kaup á áritunarmiðum fyrir útgáfu vegabréfsáritana. Útboðið snýr að framleiðslu, númerun, pökkun og afhendingu áritunarmiða, auk kaupa og ásetningar á kineg
Fjársýslan, fyrir hönd utanríkisráðuneytis Íslands, óskar eftir tilboðum í útboð nr. 23374 um kaup á áritunarmiðum fyrir útgáfu vegabréfsáritana. Útboðið snýr að framleiðslu, númerun, pökkun og afhendingu áritunarmiða, auk kaupa og ásetningar á kinegrömmum.
Um er að ræða rammasamning sem er gerður til tveggja ára í senn, en kaupandi áskilur sér rétt til að framlengja samninginn um allt að tvö viðbótartímabil, eitt ár í senn, á sömu kjörum og skilmálum. Áætlað árlegt magn samkvæmt samningnum er 100.000 áritunarmiðar.
Útboðsgögn voru afhent 26. maí 2026 klukkan 08:00 og skilafrestur tilboða er til 22. júní 2026 klukkan 12:00. Tilboð verða opnuð 22. júní 2026 klukkan 13:00.
Heimild: Útboðsvefur.is