Húsavík – Þvergarður – Endurbygging og lenging 2026
Hafnir Norðurþings óska eftir tilboðum í endurbyggingu og lengingu Þvergarðs á Húsavík, sem felur í sér umfangsmiklar framkvæmdir við bryggjukant og grjótgarð. Verkið, sem Vegagerðin auglýsir, snýst um að brjóta og saga eldri kant, þekju og polla, ás
Hafnir Norðurþings óska eftir tilboðum í endurbyggingu og lengingu Þvergarðs á Húsavík, sem felur í sér umfangsmiklar framkvæmdir við bryggjukant og grjótgarð. Verkið, sem Vegagerðin auglýsir, snýst um að brjóta og saga eldri kant, þekju og polla, ásamt því að rífa tvö masturshús. Einnig er gert ráð fyrir jarðvinnu, fyllingu og þjöppun, auk steypu á 24 akkerissteinum.
Helstu verkþættir fela í sér að reka niður 197 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ-20-1 og ganga frá stagbitum og stögum. Þá verður steyptur um 274 metra langur kantbiti með pollum, kanttré, stigum og fenderum. Gert er ráð fyrir að byggja um 136 metra langan grjótgarð við nýja bryggjukantinn, ásamt upptekt á eldri grjótgarði og endurröðun efnis. Áætlað magn í upptekt er um 3.500 rúmmetrar á 140 metra löngum kafla, en áætlað magn í nýjan garð er um 5.100 rúmmetrar af flokkuðu grjóti og sprengdum kjarna, auk 5.000 rúmmetra af fyllingarefni undir garð. Að lokum verður keyrð landfylling bakvið garð í kóta +2,8 metra á 4.000 fermetra svæði og í kóta +1,5 metra á 1.000 fermetra svæði.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu frá og með 13. október 2026. Skilafrestur tilboða er til klukkan 14:00 þriðjudaginn 27. október 2026. Ekki er heimilt að hefja verkið á árinu 2026, en því skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2027.
PEXELS
Heimild: Útboðsvefur.is