Hönnun og bygging öryggisfangelsis – Forval
Framkvæmdasýslan Ríkiseignir, fyrir hönd Dómsmálaráðuneytisins, hefur auglýst forval fyrir samkeppnisútboð sem felur í sér hönnun og byggingu fyrsta áfanga nýs öryggisfangelsis að Stóra-Hrauni í sveitarfélaginu Árborg. Markmiðið er að reisa nýtt fang
Framkvæmdasýslan Ríkiseignir, fyrir hönd Dómsmálaráðuneytisins, hefur auglýst forval fyrir samkeppnisútboð sem felur í sér hönnun og byggingu fyrsta áfanga nýs öryggisfangelsis að Stóra-Hrauni í sveitarfélaginu Árborg. Markmiðið er að reisa nýtt fangelsi á háu öryggisstigi sem mun rúma 128 afplánunarfanga og leysa af hólmi núverandi fangelsi að Litla-Hrauni.
Útboðsgögn verða afhent 2. október 2026 og skilafrestur umsókna er til 4. nóvember 2026 kl. 12:00. Um er að ræða samkeppnisútboð samkvæmt 36. grein laga um opinber innkaup nr. 120/2016, sem hefst með umræddu forvali. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Heimild: Útboðsvefur.is