Haustbraut 2 – búsetukjarni
Garðabær auglýsir eftir tilboðum í byggingu nýs búsetukjarna við Haustbraut 2. Um er að ræða 600 fermetra einnar hæðar steinsteypt hús með viðarklæðningu.
Garðabær óskar eftir tilboðum í byggingu 600 fermetra búsetukjarna við Haustbraut 2.
Verkið felur í sér fullbúið, einnar hæðar steinsteypt hús sem verður klætt utan með viðarklæðningu. Verktaki fær lóðina afhenta afgirta með tilbúnum jarðvegspúða undir sökkla.
Útboðið er almennt opið og útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 17. september 2026. Skilafrestur tilboða er 6. október 2026 klukkan 11:00. Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins.
Heimild: Útboðsvefur.is