Framework for manufacture and supply of stations for Borgarlína – Rammasamningur um Borgarlínustöðvar
Betri samgöngur ohf. óskar eftir tilboðum í rammasamning við einn birgi um framleiðslu og afhendingu stöðvabúnaðar fyrir Borgarlínu, hágæða almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu. Útboðsgögn voru afhent 11. maí 2026 og skilafrestur tilboða er 1
Betri samgöngur ohf. óskar eftir tilboðum í rammasamning við einn birgi um framleiðslu og afhendingu stöðvabúnaðar fyrir Borgarlínu, hágæða almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu. Útboðsgögn voru afhent 11. maí 2026 og skilafrestur tilboða er 16. júní 2026.
Umfang útboðsins nær til framleiðslu og afhendingar á stöðvarskýlum, tækniskápum, merkingarsúlum, bekkjum, ruslastömpum, stafrænum skjám og tengdum íhlutum til Íslands. Rammasamningurinn felur í sér skuldbundinn hluta fyrir 26 stöðvar og valkvæðan hluta fyrir viðbótarstöðvar í síðari áföngum verkefnisins.
Útboðið tekur ekki til byggingar palla, undirstaða, veitukerfa eða annarra jarð- og mannvirkjaframkvæmda. Hins vegar er skylda birgis að setja upp eina fyrstu stöð í Reykjavík og leggja fram samsetningar- og uppsetningarleiðbeiningar fyrir síðari uppsetningar.
Heimild: Útboðsvefur.is