Endurnýjun Sindravallar, jarðvinna og yfirborðsfrágangur
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og yfirborðsfrágang vegna endurnýjunar Sindravallar á Höfn í Hornafirði. Verkið felst í fullnaðarfrágangi undirbyggingar fyrir nýjan gervigrasvöll á núverandi grasvallarsvæði, auk uppbyggin
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og yfirborðsfrágang vegna endurnýjunar Sindravallar á Höfn í Hornafirði. Verkið felst í fullnaðarfrágangi undirbyggingar fyrir nýjan gervigrasvöll á núverandi grasvallarsvæði, auk uppbyggingar undir nýjar hlaupabrautir sem verða breikkaðar við knattspyrnuvöllinn.
Framkvæmdin nær til upprifs á náttúrugrasi og lífrænu undirlagi vallarsvæðisins, jarðvegsskipta undir knattspyrnuvöll, nýjar hlaupabrautir og stökksvæði. Einnig felur verkið í sér fullnaðarfrágang nýrra fráveitu- og vatnslagna, vatnsúðakerfis, og undirbyggingar undir gervigras og hlaupabrautir. Uppsetning á nýjum rennustein umhverfis innstu hlaupabrautina er einnig hluti af verkinu. Gúmmípúði, gervigras og nýtt hlaupabrautarefni eru ekki innifalin í þessu útboði.
Útboðsgögn voru afhent 13. október 2026 og skilafrestur tilboða er til 26. október 2026 klukkan 14:00. Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 26. mars 2027.
Heimild: Útboðsvefur.is