Bíóhöll rekstur og umsjón 2026-2029
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í rekstur og umsjón Bíóhallarinnar á Akranesi frá 1. júlí 2026 til 31. desember 2029, með möguleika á framlengingu. Um er að ræða þjónustuútboð númer 2601-0653. Bíóhöllin, sem er sögufrægt menningarhús frá árinu
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í rekstur og umsjón Bíóhallarinnar á Akranesi frá 1. júlí 2026 til 31. desember 2029, með möguleika á framlengingu. Um er að ræða þjónustuútboð númer 2601-0653. Bíóhöllin, sem er sögufrægt menningarhús frá árinu 1942, skal hýsa fjölbreytta menningarstarfsemi sem tekur mið af menningarhlutverki og sögu hússins.
Rekstraraðili skal sjá um reglubundnar bíósýningar, tónleika, leiksýningar og aðra samfélags- og menningarviðburði. Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi á útboðsvef Akraneskaupstaðar frá og með 12. maí 2026 kl. 13:00. Skilafrestur tilboða er til kl. 11:00 föstudaginn 12. júní 2026 og verða tilboð opnuð á sama tíma. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.
Heimild: Útboðsvefur.is