Báran – Endurnýjun á gervigrasi
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur auglýst eftir tilboðum í endurnýjun á gervigrasi í knattspyrnuhúsinu Bárunni á Höfn í Hornafirði. Um er að ræða almennt opið útboð sem felur í sér kaup, afhendingu og uppsetningu á nýju gervigraskerfi án innfylliefna
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur auglýst eftir tilboðum í endurnýjun á gervigrasi í knattspyrnuhúsinu Bárunni á Höfn í Hornafirði. Um er að ræða almennt opið útboð sem felur í sér kaup, afhendingu og uppsetningu á nýju gervigraskerfi án innfylliefna. Verkið nær yfir niðurlögn gervigrass, merkingar, frágang og allan nauðsynlegan búnað til að skila fullfrágengnu gervigrassvæði.
Útboðið er skilgreint sem vöruútboð með uppsetningu og frágangi, þar sem megináherslan er á afhendingu gervigrass og tilheyrandi búnaðar. Samningur er áætlaður að taka gildi 11. desember 2026 eða við undirritun, og skal verkinu vera lokið eigi síðar en 9. febrúar 2027. Verktaki þarf að leggja fram verkáætlun fyrir undirritun samnings.
Útboðsgögn voru afhent 19. október 2026. Frestur til að senda inn fyrirspurnir og athugasemdir er til 3. nóvember 2026, og svör verða veitt eigi síðar en 10. nóvember 2026. Tilboðum skal skila rafrænt í gegnum útboðskerfið Ajour eigi síðar en 24. nóvember 2026 kl. 14:00, en þau verða opnuð sama dag.
Heimild: Útboðsvefur.is