Auglýsing – Varðveisluhúsnæði
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir leigutilboðum í húsnæði á höfuðborgarsvæðinu sem hentar fyrir varðveislugögn Þjóðskjalasafns, Listasafns og Náttúruminjasafns Íslands. Um er að ræða varðveislurými auk stoðrýma s.s. móttöku bretta, fl
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir leigutilboðum í húsnæði á höfuðborgarsvæðinu sem hentar fyrir varðveislugögn Þjóðskjalasafns, Listasafns og Náttúruminjasafns Íslands. Um er að ræða varðveislurými auk stoðrýma s.s. móttöku bretta, flokkun, úrvinnslu gagna og starfsmannarými.
Gerð er krafa um innkeyrsluhurð sem er nægilega stór til að hægt sé að ferma stóra sendibíla innandyra. Húsnæðisþörfin auk stoðrýma er um 1.500 – 2.500 m² og skjalageymslan má gjarnan vera eitt rými. Húsnæðið skal afhent fullbúið og tilbúið til notkunar sem fyrst en eigi síðar en þremur mánuðum frá undirritun leigusamnings. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu til 5–10 ára, með heimild til framlengingar. Æskilegt er að byggingin sé ekki staðsett á áhættusvæði vegna náttúruváar, s.s. jarðskjálfta-, flóða- og sprungusvæði.
FSRE mun meta öll tilboð í samráði við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og viðkomandi stofnanir. Skilafrestur tilboða er til 19. júní 2026 kl. 13:00.
Heimild: Útboðsvefur.is