Akstur almenningssamgangna 2026 – 2028 á Vestfjörðum
Vegagerðin hefur auglýst útboð á akstri almenningssamgangna á Vestfjörðum fyrir árin 2026 til 2028. Verkefninu er skipt í tvo hluta sem snúa að akstri milli Patreksfjarðar og Bíldudalsflugvallar, annars vegar, og milli Bolungarvíkur og Ísafjarðarflug
Vegagerðin hefur auglýst útboð á akstri almenningssamgangna á Vestfjörðum fyrir árin 2026 til 2028. Verkefninu er skipt í tvo hluta sem snúa að akstri milli Patreksfjarðar og Bíldudalsflugvallar, annars vegar, og milli Bolungarvíkur og Ísafjarðarflugvallar, hins vegar.
Fyrri hlutinn, Leið 66, nær yfir akstur á leiðinni Patreksfjörður – Bíldudalsflugvöllur – Patreksfjörður. Seinni hlutinn, Leið 67, tekur til aksturs á leiðinni Bolungarvík – Ísafjarðarflugvöllur – Bolungarvík. Útboðsgögn voru afhent 5. júní 2026 og skilafrestur tilboða er til 7. júlí 2026 klukkan 14:00. Tilboð verða opnuð sama dag klukkan 14:15.
Heimild: Útboðsvefur.is