2026-04 Aðrennslisrör fyrir Kvíslatunguvirkjun (GRP og steypujárn)
Orkubú Vestfjarða ohf. óskar eftir tilboðum í hönnun, framleiðslu og afhendingu aðrennslisröra fyrir Kvíslatunguvirkjun, nánar tiltekið verkefnið KVÍSLATUNGA HYDROPOWER PROJECT, PENSTOCK PIPES nr. 2026-04. Útboðið skiptist í tvo hluta og felur í sér
Orkubú Vestfjarða ohf. óskar eftir tilboðum í hönnun, framleiðslu og afhendingu aðrennslisröra fyrir Kvíslatunguvirkjun, nánar tiltekið verkefnið KVÍSLATUNGA HYDROPOWER PROJECT, PENSTOCK PIPES nr. 2026-04. Útboðið skiptist í tvo hluta og felur í sér kaup á GRP- og steypujárnsrörum.
Fyrri hlutinn snýr að GRP-aðrennslisrörum (Glass Reinforced Polyester), þar sem óskað er eftir um 2.700 metrum af þrýstirörum í stærðum DN 1400, DN 1200, DN 1000 og DN 800. Meðfylgjandi eru tengistykkir og annar tilheyrandi búnaður. Seinni hlutinn nær til aðrennslisröra úr steypujárni (Ductile Iron), um 614 metrum af DN 1000 PN 30 og PN 40 þrýstirörum, einnig með tengistykkjum og tilheyrandi búnaði.
Bjóðendum er gefinn kostur á að bjóða í annan hvorn hlutann eða báða. Útboðsgögn voru afhent 27. júlí 2026 og tilboðsfrestur er til kl. 08:00 þann 28. ágúst 2026. Nánari upplýsingar og gögn er að finna á útboðsvef Orkubús Vestfjarða.
Heimild: Útboðsvefur.is