Útboð U25029: Nýtt flugvélastæði á Keflavíkurflugvelli
Isavia óskar eftir tilboðum í verkefnið NTA25, sem felur í sér uppfærslu á flugvélastæðum 1, 3 og 5 á Keflavíkurflugvelli. Skilafrestur er 10. júní 2026.
Isavia býður út verkefnið NTA25, sem er næsti áfangi í stækkun Keflavíkurflugvallar samkvæmt þróunaráætlun flugvallarins. Verkefnið felur í sér uppfærslu á núverandi flugvélastæðum 1, 3 og 5.
Verkið snýst um hæðaraðlögun stæða og flughlaðs, þar á meðal lagningu nýrrar steypu og malbiks. Einnig felur það í sér breytingar á afvötnun og lögnum, viðbætur við vatns- og hitakerfi, ásamt lagningu rafmagnsröra. Framkvæmdir eru áætlaðar á um fimm ára tímabili og í tveimur fösum.