Útboð í Njarðvíkurskógum en íbúasamráð í Höfnum

Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt útboð á uppbyggingu og rekstri tjaldsvæðis í Njarðvíkurskógum. Áform um tjaldstæði í Höfnum bíða frekari úrvinnslu og íbúasamráðs.

Útboð í Njarðvíkurskógum en íbúasamráð í Höfnum
Mynd: Braggi.is

Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að bjóða út uppbyggingu og rekstur tjaldsvæðis í Njarðvíkurskógum. Áform um tjaldstæði í Höfnum bíða frekari úrvinnslu.

Um er að ræða 1,8 hektara afþreyingar- og þjónustusvæði í Njarðvíkurskógum, sem er staðsett í nágrenni við íþrótta- og útivistarsvæði bæjarins. Skipulagsráð veitti heimild til að hefja vinnu við tillögu að deiliskipulagi fyrir þetta tjaldsvæði.

Í Höfnum var tekið fyrir endurtekið erindi frá Sveini Enok Jóhannssyni, sem óskaði eftir afnotum af landi í eigu Reykjanesbæjar undir tjaldstæði fyrir ferðavagna. Fyrirhuguð uppbygging á því svæði krefst breytinga á aðalskipulagi Hafna.

Skipulagsráð benti á að slík breyting þyrfti að vinnast í samráði við íbúa svæðisins og vísaði málinu til heildarendurskoðunar á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir

Heimild: Víkurfréttir

Deila Facebook X LinkedIn