Útboð - Endurbætur í eldhúsi Hofgarði
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Endurbætur í eldhúsi Hofgarði“, sem er almennt útboð. Verkið felur í sér rif og förgun á núverandi eldhúsi og tækjum, ásamt gólfefnum og veggjum. Meðal annars verður veggur milli eldhúss og u
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Endurbætur í eldhúsi Hofgarði“, sem er almennt útboð. Verkið felur í sér rif og förgun á núverandi eldhúsi og tækjum, ásamt gólfefnum og veggjum. Meðal annars verður veggur milli eldhúss og uppvöskunarrýmis sagaður niður og hlaðinn veggur fjarlægður. Einnig verður sagað í gólf fyrir nýjar fráveitu-, raf- og gólfhitalagnir. Hurð og lúga milli eldhúss og salar verða rifnar.
Nýr milliveggur verður settur upp til hólfunar á geymslu, ásamt nýjum gólfefnum og hljóðvistarlofti. Ný eldhúsinnrétting og eldhústæki verða sett upp, ásamt uppvöskunarlínu, hillum og rekkum. Nýjar lagnir verða lagðar, þar á meðal raflagnir, fráveitulagnir, vatnslagnir og hitalagnir í gólf. Nýr útsogsháfur með tilheyrandi útkast- og inntaksristum á þaki verður settur upp. Nettóstærð eldhúss er um 36 fermetrar og nettóstærð geymslu um 6 fermetrar. Framkvæmdir skulu hefjast strax eftir undirritun samnings og vera lokið fyrir 30. september 2026. Útboðsgögn eru fáanleg rafrænt með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hornafjörður útboð
Heimild: Hornafjörður útboð