Urðarmelur malbikaður
Malbikun nýrrar götu, Urðarmels, í Melahverfi Hvalfjarðarsveitar lauk nýverið. Gatan þjónar nýju íbúðabyggðarsvæði með blandaðri byggð.
Malbikun Urðarmels, nýrrar götu í Melahverfi Hvalfjarðarsveitar, lauk þann 2. júlí síðastliðinn. Gatan þjónar nýju íbúðabyggðarsvæði þar sem gert er ráð fyrir blandaðri byggð.
Á svæðinu eru alls 12 lóðir ætlaðar fyrir íbúðarhúsnæði. Þar af eru 3 lóðir fyrir einbýlishús, 4 lóðir fyrir parhús og 5 lóðir fyrir fjögurra íbúða raðhús. Samtals er gert ráð fyrir 3 einbýlishúsum og 28 íbúðum í par- og raðhúsum á svæðinu.
Nánari upplýsingar um lausar lóðir eru aðgengilegar á kortasjá Hvalfjarðarsveitar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hvalfjarðarsveit
Heimild: Hvalfjarðarsveit