Upplýsingar varðandi Búastaðagryfju
Uppsöfnun timburs í Búastaðagryfju í Vestmannaeyjum á rætur sínar að rekja til bilunar á færibandi við kvörn í móttökustöð Terra. Vegna tafa á útvegun nýs færibands var tímabundin lausn að koma timbrinu fyrir í Búastaðagryfju. Mikið magn safnaðist þa
Uppsöfnun timburs í Búastaðagryfju í Vestmannaeyjum á rætur sínar að rekja til bilunar á færibandi við kvörn í móttökustöð Terra. Vegna tafa á útvegun nýs færibands var tímabundin lausn að koma timbrinu fyrir í Búastaðagryfju. Mikið magn safnaðist þar upp á skömmum tíma vegna mikillar losunar frá einstaklingum og fyrirtækjum.
Þann 3. júní síðastliðinn fór fram formlegt eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar í Búastaðagryfju. Vestmannaeyjabær og Terra bíða nú eftir skýrslu frá stofnuninni. Þegar skýrslan liggur fyrir munu aðilar yfirfara hana og bregðast við ábendingum með úrbótaáætlun.
Megináhersla er lögð á að koma svæðinu í viðunandi horf hið fyrsta. Á næstu vikum mun Terra fjarlægja allt timbur sem safnast hefur upp í gryfjunni og koma því í viðeigandi farveg. Vestmannaeyjabær þakkar íbúum fyrir ábendingar og þolinmæði á meðan unnið er að lausn málsins.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Vestmannaeyjabær
Heimild: Vestmannaeyjabær