Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra opnar 16. september
Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra 16. september. SSNV hvetur einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir með hugmyndir að verkefnum til að kynna sér tækifærin sem sjóðurinn býður upp á. Sjóðurinn styður við atvi
Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra 16. september. SSNV hvetur einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir með hugmyndir að verkefnum til að kynna sér tækifærin sem sjóðurinn býður upp á. Sjóðurinn styður við atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni, menningar- og samfélagsverkefni og veitir auk þess stofn og rekstrarstyrki til stofnana á sviði menningarmála á Norðurlandi vestra og gegnir þannig mikilvægu hlutverki í að koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Í síðustu úthlutun, vegna verkefna ársins 2026, var rúmum 76 milljónum króna úthlutað til uppbyggingar í landshlutanum.
→ Lesa upprunaleg grein á Feykir
Heimild: Feykir