Uppbygging göngustíga við Bleiksá hafin
Vinna við uppbyggingu nýrra göngustíga við Bleiksá á Eskifirði er hafin. Stígarnir verða tveggja metra breiðir og lagðir með tilliti til landslags og gróðurs.
Vinna við uppbyggingu göngustíga við Bleiksá á Eskifirði er hafin. Nýr stígur innan við ána er þegar farinn að taka á sig mynd, en undirbúningur framkvæmda austan Bleiksár stendur einnig yfir og er ráðgert að jarðvinna hefjist á næstu dögum.
Göngustígurinn innan við Bleiksá mun liggja frá grafreitnum, í gegnum skógræktarsvæðið og upp að fyrirhugaðri göngubrú yfir ána. Í skógarlundi við stíginn verður komið upp dvalarsvæði með setbekk og upplýsingaskilti, þar sem grjóti verður vélraðað til að afmarka svæðið.
Stígurinn austan Bleiksár mun liggja frá skrúðgarðinum við tjaldsvæðið, fram hjá Myllunni og upp að fyrirhugaðri göngubrú, og þaðan áfram upp hlíðina að fyrirhuguðum útsýnispalli neðan Bleiksárfoss. Við Mylluna verður einnig útbúið dvalarsvæði með setbekk, upplýsingaskilti og vélröðuðu grjóti.
Báðir stígarnir verða tveggja metra breiðir og lagðir þannig að þeir fylgi landslaginu og raski á gróðri verði haldið í lágmarki. Eftir framkvæmdir verða gróðurtorfur og annað gróðurlag nýtt við frágang til að stuðla að uppgræðslu.
Ráðgert er að setja upp lýsingu meðfram stígnum austan Bleiksár og nýja lýsingu við Bleiksárfoss. Svæðið hefur verið minjaskráð og við undirbúning framkvæmdanna var haft samráð við Minjastofnun Íslands, Skógræktarfélag Eskifjarðar og íbúasamtök á Eskifirði til að taka tillit til minja og umhverfis.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Fjarðabyggð
Heimild: Fjarðabyggð